Stjórnendur og stjórn
Stjórnendur
Sigtryggur Hilmarsson
Framkvæmdastjóri
Sigtryggur hefur starfað sem framkvæmdastjóri MEDOR síðan 2011. Þar á undan starfaði hann hjá Vistor sem framkvæmdastjóri heilbrigðistæknisviðs og stjórnandi í viðskiptaþróun frá 2004. Á árunum 1996 til 2004 starfaði Sigtryggur sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Radiometer America í Cleveland, BNA og sem vörustjóri hjá sama fyrirtæki í Kaupmannahöfn. Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Sigtryggur er stjórnarformaður ORF Genetics hf. og situr í stjórn Stoð ehf.
Vala Dröfn Jóhannsdóttir
Deildarstjóri | Hjúkrunar- og lækningarvörur
Vala hefur starfað sem deildarstjóri Hjúkrunar- og lækningavörudeildar MEDOR síðan 2020. Þar áður starfaði hún hjá Vistor sem viðskiptastjóri og frá 2013 sem markaðsstjóri Klasa 5 (Novartis & Alcon). Einnig hefur Vala starfað hjá deCODE sem markaðsstjóri rannsóknarþjónustu á viðskiptaþróunarsviði, auk rannsóknarstarfa. Vala er með diplóma í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands, masterspróf í lífefnafræði/erfðafræði frá l‘Université de Science et Techniques de Languedoc í Montpellier, Frakklandi, og B.Sc. í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands.
Karl Friedrich Karlsson
Deildarstjóri | Þjónusta
Karl hefur starfað sem deildarstjóri Tæknideildar MEDOR síðan 2020. Þar á undan starfaði hann sem tæknimaður hjá Tæknideild MEDOR frá árinu 2016. Á árunum 2008-2016 starfaði Karl sem tæknimaður hjá Heilbrigðistæknideild Landspítala. Karl er með sveinsbréf í rafeindavirkjun.
Stjórn
Jón Björnsson
Stjórnarformaður
Jón Björnsson er forstjóri Veritas. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón hefur starfað sem forstjóri Origo, Festi og Krónunnar, Magasin du Nord og Haga. Jón situr í stjórn Boozt AB, Origo Lausna og Dropp.
Þorvaldur Ingvarsson
Stjórn
Þorvaldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands árið 1987 og með doktorsgráðu í bæklunarskurðlækningum frá Háskólanum í Lundi árið 2000. Þorvaldur er bæklunarskurðlæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri og dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Össurar. Hann hefur einnig verið forstjóri og lækningaforstjóri Sjúkrahúss Akureyrar. Þorvaldur hefur víðtæka reynslu af störfum innan heilbrigðisgeirans og hefur starfað í mörgum nefndum á vegum hins opinbera.
Ingibjörg Eyþórsdóttir
Stjórn
Ingibjörg er hjúkrunarfræðingur að mennt með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Ingibjörg er framkvæmdastjóri hjúkrunar á hjúkrunarheimilinu Sólvangi en þar á undan var hún hjá sprotafyrirtækinu Kara connect þar sem unnið er að hönnun hugbúnaðar í fjarskiptatækni sem bætir aðgengi að þjónustu í mennta-, velferðar og heilbrigðisgeiranum. Áður starfaði Ingibjörg sem rekstrarstjóri Klíníkurinnar Ármúla þar sem hún kom meðal annars að allri uppbyggingu og þróun. Fyrir þann tíma starfaði hún annars vegar sem deildarstjóri og hins vegar sem sölu- og markaðsstjóri Johnson & Johnson hjá Icepharma. Ingibjörg hefur víðtæka reynslu og þekkingu innan heilbrigðisgeirans bæði hvað varðar einkageirann sem og hið opinbera og hefur komið að þróunar- og uppbyggingarverkefnum í þessum geira.
Ari Kristján Sæmundsen
Stjórn
Ari útskrifaðist með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1974. Hann var stundakennari við HÍ og Hjúkrunarskóla Íslands og afleysingakennari við Menntaskólann í Reykjavík samhliða því að ljúka við 4. árs rannsóknarverkefni hjá Rannsóknarstofu HÍ í veirufræði. Útskrifaðist með M.Sc. gráðu í örverufræði frá Virginia Tech í Bandaríkjunum 1978 og Ph.D. í veirufræði frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1982. Ari var einn af stofnendum Gróco ehf 1983 og framkvæmdastjóri þess frá 1985. Vann loks sem viðskiptastjóri hjá MEDOR ehf. 2012-2018, en er nú sestur í helgan stein.
Ari var um skeið í stjórn Verkfræðingafélags Íslands, Krabbameinsfélags Reykjavíkur og líftæknifyrirtækisins CanAg Diagnostic AB í Gautaborg. Hann var í starfshópi Rannsóknarráðs ríkisins um líftækni 1983 og nefndarformaður nefndar um möguleika íslenskrar líftækni á vegum iðnaðarráðuneytisins 1984.