Um STOÐ

STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.

MEDOR sameinaðist systurfélagi sínu Stoð í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.

Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.

STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Markmið STOÐ er að vera í nánum tengslum við viðskiptavini sína og veita þeim ráðgjöf og lausnir í samræmi við þarfir þeirra.  STOÐ kappkostar að hafa ávallt yfir að ráða nýjustu og öflugustu tækni og þekkingu á því sviði sem fyrirtækið starfar.

Deildir

STOÐ skiptist í tvær markaðsdeildir;  hjúkrunar- og lækningavörudeild og rannsóknarvörudeild.
Innan STOÐ starfar öflug tæknideild.  Starfsmenn deildarinnar hafa mikla reynslu og þekkingu á viðhaldi og viðgerðum á háþróuðum lækninga- og rannsóknarbúnaði.

Fjölbreytt vöruúrval

STOÐ býður fjölbreytt úrval vöru og þjónustu.  Allt frá háþróuðum tækjum og kerfum fyrir stofnanir niður í vörur fyrir einstaklinga svo sem stómavöru, þvagleggi og plástra.  Helstu viðskiptavinir STOÐAR eru heilbrigðisstofnanir, apótek, rannsóknarstofur í líftækni, efnagreiningu og lyfjaiðnaði.

Gildi STOÐ

Starfsfólk STOÐAR leitast ávallt við að hafa gildi fyrirtækisins að leiðarljósi í störfum sínum:

  • Hreinskiptni
  • Framsækni
  • Áreiðanleiki