Fjallað um apótekslausn frá MEDOR í sjónvarpsfréttum RÚV

Fjallað um apótekslausn frá MEDOR í sjónvarpsfréttum RÚV

Í sjónvarpsfréttum RÚV 2. Febrúar 2025 var fjallað um nýjung frá MEDOR, Riedl Phasys sjálfvirkan lyfjalager, í Akureyrarapóteki Norðurtorgi. Þessi „róbóti“ er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis. Hann er skalanlegur fyrir flestar gerðir apóteka fyrir sjálfvirknivæðingu á lagerhaldi, tiltekt og afgreiðslu lyfja. Með því er hægt að hagræða í rekstri og bæta þjónustu við viðskiptavini.
Skoða frétt RÚV

Afgreiðir allt að þúsund pakkningar á klukkustund
Í Riedl Phasys mætist þýskt hugvit og ítölsk hönnun. Hægt er að hanna lyfjalagerinn eftir þörfum hvað varðar útlit, lögun, stærð, hvort mötun er sjálfvirk eða hálf-sjálfvirk. Einn helsti kostur Riedl Phasys er að armurinn sem tekur til lyfin og skilar þeim af sér er einstaklega hraðvirkur (5m/sekúndu) og getur þ.a.l. afgreitt allt að 1.000 pakkningar á klukkustund. Þegar viðskiptavinur kemur í apótekið að sækja lyf, er það slegið inn í apótekskerfið og örfáum sekúndum seinna skilar Riedl Phasys pakkningunni/pakkningunum af sér.

Veit hvenær pakkningar fyrnast

Hægt er að fá Riedl Phasys með sjálfvirkri mötun þar sem þarf einungis að hella lyfjapakkningum í trekt og Riedl tekur pakkningarnar, skannar þær og raðar upp í hillur. Kerfið veit alltaf hvar allar pakkningar eru og hvenær þær fyrnast. Með því er hægt að draga úr sóun vegna fyrningar lyfja.

 

Tæknideild MEDOR þjónustar Riedl Phasys

Tæknimenn MEDOR hafa fengið þjálfun í þjónustu og viðhaldi Riedl Phasys. Nauðsynlegir varahlutir eru tiltækir hjá MEDOR og tæknileg þjónusta er innifalin í þjónustusamningi við viðskiptavini.

 

Með Riedl Phasys sjálfvirkum lyfjalager er afgreiðsla lyfja hraðari, öruggari og viðskiptavinir hafa meira aðgengi að lyfjafræðingum til ráðgjafar.