Um MEDOR
MEDOR var stofnað til að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfingu í sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvörum. MEDOR er leiðandi í ráðgjöf, sölu og þjónustu á hágæða lækninga-, hjúkrunar- og rannsóknarvöru.
Staðsetning
Starfsfólk
Markmið MEDOR er að vera í nánum tengslum við viðskiptavini sína og veita þeim ráðgjöf og lausnir í samræmi við þarfir þeirra. MEDOR kappkostar að hafa ávallt yfir að ráða nýjustu og öflugustu tækni og þekkingu á því sviði sem fyrirtækið starfar.
Deildir
MEDOR skiptist í tvær markaðsdeildir; hjúkrunar- og lækningavörudeild og rannsóknarvörudeild.
Innan MEDOR starfar öflug tæknideild. Starfsmenn deildarinnar hafa mikla reynslu og þekkingu á viðhaldi og viðgerðum á háþróuðum lækninga- og rannsóknarbúnaði.
Fjölbreytt vöruúrval
MEDOR býður fjölbreytt úrval vöru og þjónustu. Allt frá háþróuðum tækjum og kerfum fyrir stofnanir niður í vörur fyrir einstaklinga svo sem stómavöru, þvagleggi og plástra. Helstu viðskiptavinir MEDOR eru heilbrigðisstofnanir, apótek, rannsóknarstofur í líftækni, efnagreiningu og lyfjaiðnaði.
Gildi MEDOR
Starfsfólk MEDOR leitast ávallt við að hafa gildi fyrirtækisins að leiðarljósi í störfum sínum:
- Hreinskiptni
- Framsækni
- Áreiðanleiki