MEDOR has merged with its sister company Stoð

English below//

MEDOR hefur sameinast systurfélagi sínu Stoð undir nafninu STOÐ. Sameiningin tók gildi í mars 2026 og er starfsemi sameinaðs félags rekin frá höfuðstöðvum að Draghálsi 14–16 í Reykjavík, þar sem Stoð hefur verið til húsa. Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982, með áherslur á heildarlausnir fyrir einstaklinga og stofnanir. MEDOR var stofnað 2011 til að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfingu í sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvörum. Félögin eru hluti af Veritas samstæðunni.

Sigtryggur Hilmarsson, sem áður var framkvæmdastjóri MEDOR, tók við sem framkvæmdastjóri sameinaðs félags STOÐAR 1. mars.  Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands.

Með sameiningunni styrkist starfsemi félagsins enn frekar með aukinni samþættingu og bættri þjónustu. Viðskiptavinum stendur nú til boða fjölbreyttara vöru- og þjónustuframboð og heildstæðar lausnir á einum stað á sviði heilbrigðis- og rannsóknarþjónustu.

„Sameining MEDOR og Stoðar er mikilvægt skref sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum betra aðgengi að þekkingu, sérhæfingu og lausnum á einum stað. Við höldum áfram að byggja á þeirri fagmennsku og áreiðanleika sem bæði félög hafa staðið fyrir, um leið og við styrkjum þjónustuna enn frekar,“ segir Sigtryggur Hilmarsson, framkvæmdastjóri STOÐAR.

Áfram verður lögð áhersla á faglega ráðgjöf, sölu og þjónustu á hágæða rannsóknar- og hjúkrunarvörum, auk lækninga-, hjálpar- og stoðtækja.

Tæknideild MEDOR starfar áfram með óbreyttu sniði að Miðhrauni 4 og Distica mun áfram annast sölu og dreifingu á vörum félagsins fyrir heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og rannsóknarstofur, líkt og verið hefur.

---

MEDOR and Stoð merge under the name STOÐ


MEDOR has merged with its sister company Stoð under the unified name STOÐ. The merger took effect in March 2026, and the operations of the combined company are now conducted from its headquarters at Dragháls 14–16 in Reykjavík, where Stoð is based.

Stoð is a well‑established healthcare services company, founded in 1982, with a strong focus on comprehensive solutions for individuals and institutions. MEDOR is a leading medical device and laboratory products distributor in Iceland, founded in 2011 to meet the growing demand for specialized sales and service of high‑quality medical devices, nursing products, and laboratory equipment. Both companies are part of the Veritas Group.

Sigtryggur Hilmarsson, who previously served as Managing Director of MEDOR, has assumed the role of Managing Director of the merged company STOÐ as of March 1. Mr. Hilmarsson holds an MBA from Erasmus University, Rotterdam School of Management, a Master of Pharmacy degree from the University of Iceland, and has completed an Executive Management Program at Columbia Business School in New York.

With the merger, the company’s operations are further strengthened through increased integration and improved services. Customers now have access to a broader range of products and services, as well as comprehensive, end‑to‑end solutions in the fields of healthcare and research.

“The merger of MEDOR and Stoð is an important step that enables us to provide customers with improved access to knowledge, expertise, and solutions in one place. We continue to build on the professionalism and reliability that both companies are known for, while further strengthening our services,” says Sigtryggur Hilmarsson, Managing Director of STOÐ.

The company will continue to place strong emphasis on professional consulting, sales, and service of high‑quality research and nursing products, as well as medical, assistive, and orthopedic equipment.

The MEDOR technical department will continue to operate unchanged at Miðhraun 4, and Distica will continue to manage the sales and distribution of the company’s products to healthcare institutions, companies, and research laboratories, as before.