Heidolph

Heidolp er framleiðand ýmissa smátækja sem allar rannsóknastofur þurfa, rotary evaporators, stirrers, mixers og fleira.

Smátæki

Prótein og DNA einangrun – Allt fyrir DNA og Prótein rafdrátt: búr og rekstravörur– PCR, RT-PCR tæki og rekstravörur. Frumuteljarar. Prótein og DNA myndgreiningartæki. Próteinskiljurnartæki (FPLC). Og ekki gleyma líftæknikennslukittunum sem hafa verið vinsæl í skólum landsins. Bio-Rad er einn helsti framleiðandi kontróla fyrir klínískar rannsóknastofur.

Hefur vaxið hratt undanfarin ár og bjóða nú vörur frá Stuart, Techne, Jenway, Electrothermal og PCRmax. Vöruúrvalið er því orðið gríðarlegt og má þar helst nefna hitaplötur, vöggur, hristara, vatnshreinsitæki, vatnsböð, hitablokkir,PCR tæki, litrófsljósmæla, ýmsa mæla (PH, Ion, leiðni) ofl.

Krómatógrafía til rannsókna og framleiðslu ásamt öllu fyrir líftækni og til filtrunar hverskonar. Rafdráttur og greiningabúnaður honum tengdur.

Eppendorf framleiðir vörur fyrir rannsóknastofur s.s. hágæða plastvörur, pípettur, frystar, hristarar, fermentorar, CO2 skápar og skilvindur.

Gilson hefur í gegnum tíðina einbeitt sér að framleiðlsu á búnaði til vökvameðhöndlunar, m.a. pípettur og er Pipetman Classic vel þekkt á íslenskum rannsóknastofum. Á síðustu árum hefur Gilson verið að breikka vörulínu sína og hefur sett á markað t.d. þjarka og þáttasafnara, auk nýrra útfærslna af pípettum: Microman, Repetman, Pipetman L og G og Pipetman Neo og það nýjasta frá þeim er Pipetman M og Pipetman Concept sem eru rafrænar.

Frá árinu 1947 hefur HACH framleitt tæki og efni til greiningar á vatni. Kröfur um gæði vatns og eftirlit hvers konar eru alltaf að aukast. HACH er góður kostur hvort sem um er að ræða eftirlit með sundlaugum, frárennsli frá iðnaðarfyrirtækjum eða tilraunir á rannsóknastofum.

Heidolp er framleiðand ýmissa smátækja sem allar rannsóknastofur þurfa, rotary evaporators, stirrers, mixers og fleira.

INTEGRA sérhæfir sig í búnaði til ætagerðar og meðhöndlunar á æti. Suðupottar, átöppunarvélar, sugur og dælur sem eru sérstaklega hönnuð til vinnslu ætis. Einnig gott úrval smávöru sem þarf á öllum rannsóknastofum, handdælur, brennarar og fl.

Isolab framleiðir glervöru skv. ISO 9001 staðli. Við höfum náð einstaklega góðum samningum við þá og því er verðið alveg ótrúlega gott. Hættu að borga fyrir glervöru sem hún væri postulín.

IUL er framleiðandi á vörum til bakteríu og örverurannsókna. Colony counter, spiral plater og ýmis önnur hjálpartæki.

Applied Biosystems og Invitrogen runnu saman í eitt fyrirtæki undir nafninu LIFE TECHNOLOGIES, og til varð fyrirtæki, sem bauð upp á alhliða lausnir í lífvísindarannsóknum. Life Technologies var síðan keypt af Thermo Fisher Scientific (sjá hér að neðan), en það er önnur saga.

MerckMillipore var til við samruna efnavörufyrirtækisins Merck og Millipore, sem best er þekkt fyrir vatnshreinsibúnað og ýmsar síulausnir. MM er í forystu með nýjar lausnir sem einfalda og bæta rannsóknir og þróun m.a. í lífvísindum. Þá er MM einnig öflugur, lausnamiðaður samstarfsaðili þegar kemur að framleiðsluferli lífefna (bioprocess).

Eru með frábært úrval af vogum fyrir allar gerðir rannsóknastofa. Einnig hafa þeir gríðarlegt úrval af filterum fyrir síun og hreinsun til að sigrast á erfiðum verkefnum sem við lendum í á rannsóknastofunni.

Sigma Aldrich er alþjóðlegt fyrirtæki með framleiðslu í mörgum löndum í 4 heimsálfum og þekktast fyrir fjölbreytt úrval efnavöru. Aðalmarkmið Sigma-Aldrich er að tryggja viðskiptavinum sínum rannsóknavöru fljótt og örugglega. MEDOR býður upp á ýmis konar þjónustu við Sigma-Aldrich viðskiptavini hér á Íslandi. Fyrst ber að nefna lagerinn okkar, sem telur yfir eitthundrað vörunúmer frá Sigma-Aldrich. Einnig pantar MEDOR vikulega flugsendingar frá Þýskalandi þær vörur sem viðskiptavinir óska en ekki eru til á lager. Ef mikið liggur við, er hægt að taka vörur frá Sigma-Aldrich með hraðsendingum, að því gefnu að vöruna megi flytja með slíkum hætti.

Innan Thermo Scientific má nú finna fjölmörg þekkt vörumerki s.s.: Thermo Environmental, Savant, Orion, Andersen Instruments, Cahn, LabSystems, Heraeus, Forma, Sorvall, Revco, Nunc og Nalge, svo eitthvað sé nefnt, og nú síðast Life Technologies. Þessi gömlu og þekktu vörumerki hverfa eitt af öðru og vörumerkið Thermo Scientific kemur í þeirra stað. Við aðstoðum viðskiptavini okkar að rata um þetta gríðarmikla völundarhús fjölda ólíkra fyrirtækja og vörutegunda.