Helsta orsök fylgikvilla í kringum stóma er húðerting vegna leka meðfram plötunni ef hún liggur ekki nægilega þétt að stómanu. Á mótanlegum plötum frá ConvaTec liggur hlífðarkragi þétt utan um stómað og veitir einstakt öryggi gegn leka.
Rannsóknir á mótanlegum plötum frá ConvaTec hafa sýnt fram á að þéttni plötunnar í kringum stómað kemur í veg fyrir leka og verndar húðina. 95% af stómaþegum sem byrjuðu að nota mótanlegar umbúðir frá ConvaTec eru með heila og heilbrigða húð1.
Mótanlegar plötur eru teygjanlegar og aðlagast þínum líkama og hreyfingum.
Plöturnar eru einkum húðvænar og hentar vel fyrir viðkvæma húð.
Þú mótar sjálf/ur plötuna með fingrinum á einfaldan hátt, engin þörf á að klippa til plötuna.
ConvaTec býður upp á fjölbreytt vöruúrval mótanlegra umbúða fyrir allar gerðir stóma. Þar á meðal einshluta samfellur og tveggja hluta umbúðir með smelltum eða límdum pokum.
Sjá vörubækling mótanlegra umbúða hér.
Ef þú hefur frekari spurningar vinsamlega hafðu samband við medor@medor.is.
1.Chaumier D, Bengdadi N, Le Gal Lambec M, Ligier MC, Espirac B, Edmond D. OSMOSE Study: An Evaluation of the Peristomal Skin Condition in Ostomates Using Moldable Skin Barriers – Final Results. Paper presented at: 19th Biennial Congress of the World Council of Enterostomal Therapists: April 2012, Adelaide, Australia